Hvað?

Jæja.. Það er nú meira veðrið alltaf hreint:O

Í morgun þá hrökk ég við að snjór var að hrynja af þakinu, svona meðfram því..og herbergið mitt er undir smá súð. Ég fékk létt hjartaáfall! En svo sofnaði ég aftur.

Svo seinna vaknaði ég við að mér fannst ég vera með náladofa í andlitinu, og fór eikkað að þreifa á andlitinu á mér.. en þá var þetta ekki náladofi!! :O

Vindurinn stóð svo mikið uppá gluggann hjá mér og snjóaði svo mikið að það voru farnar að koma svona örlitlar snjóflygsur inn um LOKAÐAN GLUGGANN!

Svo þegar ég ákvað að fara á fætur þá dreg ég frá, og sé bara skaflinn á glugganum hjá mér..að utan sko! Ekki furða haha::D

En sjaldan er öll vitleysan eins, aldrei lent í því áður að það hafi snjóað á mig inni með lokaðan gluggaWink

Kv. Sigrún Cool

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband